Nemendur í textíl seldu bleikar herraslaufur til styrktar Krabbameinsfélagi Suðurnesja
Nemendur í textíl í Fjölbrautaskóla Suðurnesja nýttu eina viku í kennslustundum og saumuðu og seldu bleikar herraslaufur í tilefni af bleikum október. Ágóðinn af sölunni var 140.000 krónur og var ákveðið að styrkja Krabbameinsfélag Suðurnesja.
Agnar Guðmundsson frá Krabbameinsfélagi Suðurnesja kom og veitti styrknum viðtöku. Agnar ræddi við nemendur um starfsemi Krabbameinsfélags Suðurnesja og hversu mikilvægt væri að fá styrki frá samfélaginu til þess að hjálpa þeim sem fá krabbamein. Þetta er sjöunda styrktarverkefnið hjá textíldeildinni en síðast var það Fjölsmiðjan sem naut góðs af.