Nemendur í Stapaskóla söfnuðu 840 þúsund krónum til styrktar veikum bekkjarbróður
Nemendur í 7. bekk í Stapaskóla stóðu fyrir fjáröflun fyrir bekkjarbróður sinn sem greindist með bráðahvítblæði í byrjun mars.
Nú er stefnan tekin til Svíþjóðar hjá honum á næstu dögum þar sem hann fer í beinmergsskipti. Bekkjarsystkini hans vildu ólm hjálpa honum og ákváðu þau að vera með fjáröflun fyrir hann. Gengið var í hús í Innri-Njarðvík og safnað áheitum fyrir fótboltamarþon.
Nemendurnir spiluðu fótbolta saman frá því þau mættu í skólann síðasta fimmtudag og þangað til skóladagurinn var búinn. Það voru því þreyttir og mjög ánægðir nemendur sem fóru heim úr skólanum enda gild ástæða fyrir gleðinni.
Áheitasöfnunin gekk vonum framar og var heildarupphæðin fyrir áheitin um 840.000 krónur.
Ef fleiri vilja leggja hönd á plóg þá er það enn vel þegið en leggja má inn á styrktarreikning hans: Reikningsnúmerið er 0542-14-404971 og kennitalan 190808-4080.