Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nemendur í stærri sveitarfélögum standa sig best
Grunnskólanemendur.
Föstudagur 28. febrúar 2014 kl. 10:44

Nemendur í stærri sveitarfélögum standa sig best

- Miðað er við 5000 íbúa eða fleiri

Nemendur í sveitarfélögum með 5000 íbúa eða fleiri standa sig að jafnaði betur en nemendur í smærri sveitarfélögum. Þetta kemur fram þegar niðurstöður úr Skólavoginni eru skoðaðar, en Skólavogin er mælitæki sem ber saman skólastarf sveitarfélaga á ýmsum þáttum.

Þegar niðurstöður úr samræmdum prófum eru skoðaðar kemur í ljós að samband er á milli stærðar sveitarfélaga og árangurs á samræmdum könnunarprófum. Munurinn er verulegur þar sem nemendur stóru sveitarfélaganna eru að meðaltali yfir landsmeðaltali en nemendur í smærri sveitarfélögunum eru að jafnaði töluvert undir landsmeðaltali.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, segir að margar ástæður geti legið að baki. Til dæmis séu atvinnutækifæri fyrir háskólamenntað fólk fleiri í stórum bæjarfélögum en smáum og íbúasamsetning þeirra því öðruvísi en smærri sveitarfélaga, en vitað er að samband er milli menntunar foreldra og námsárangurs.

Sveitarfélög eins og Reykjanesbær, og önnur stærri sveitarfélög, búi að jafnaði við styrkari stjórnsýslu, öflugri stefnumótun og betri sérfræðiþjónustu en smærri sveitarfélög og eigi einnig auðveldara með að laða til sín hæfa kennara en lítil afskekkt sveitarfélög. Gylfi Jón varar að lokum við að alhæfa um of út frá þessu sambandi. Auðvitað séu til lítil sveitarfélög þar sem nemendur eru að ná afbragðsárangi á þessum mælikvarða.