Nemendur í fjarnámi á Akureyri útskrifast í Reykjanesbæ
Nemendur í fjarnámi við Háskólann á Akureyri munu útskrifast í Reykjanesbæ 17. júní 2004. Í samráði við Háskólann á Akureyri og að ósk bæjaryfirvalda var sú ákvörðun tekin að nemendur í fjarnámi í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum útskrifuðust í sinni heimabyggð m.a. til þess að kynna betur möguleika á háskólanámi í Reykjanesbæ.
Alls stunda 88 fjarnemar nám hjá Miðstöð símenntunar í dag en vorið 2004 verða útskrifaðir fyrstu fjarnemar í viðskipta- og hjúkrunarfræði. Viðskiptafræðinemarnir eru fyrstir til þess að útskrifast í fjarnámi í viðskiptafræði frá HA.