Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nemendur FS horfðu saman á „Fáðu já!“
Nemendur horfa á myndina í morgun. VF-Mynd/JJK
Miðvikudagur 30. janúar 2013 kl. 13:39

Nemendur FS horfðu saman á „Fáðu já!“

Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja horfðu í hádeginu í dag saman á myndina „Fáðu já!“ sem leikstýrð er af poppstjörnunni Páli Óskari Hjálmtýssyni. Myndinni er ætlað að skýra mörkin á milli kynlífs og ofbeldis, vega á móti áhrifum klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum.

Leikstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson, sem einnig semur handritið ásamt Brynhildi Björnsdóttur og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur en framleiðandi er Zetafilm. Myndin er styrkt af Mennta- og menningamálaráðuneyti, Innanríkisráðuneyti og Velferðarráðuneyti í vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum og unglingum. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Myndin var sýnd samtímis í öllum grunn- og framhaldsskólum á Íslandi í dag. Allir geta séð myndina í háskerpu á heimasíðunni www.faduja.is sem opnar sama dag. Þar verður einnig hægt að nálgast myndina textaða á ensku, pólsku, spænsku, dönsku, filippeysku og íslensku fyrir heyrnardaufa.