HSS
HSS

Fréttir

Nemendur Akurskóla í umhverfisvernd
Laugardagur 20. apríl 2013 kl. 13:50

Nemendur Akurskóla í umhverfisvernd

Nemendur í 10. bekk í Akurskóla vilja vekja bæjarbúa og landsmenn alla til umhugsunar um umhverfisvernd og hversu auðvelt það er að taka þátt í að vernda umhverfið með litlum ákvörðunartökum.

Margt smátt gerir eitt stórt. Þeir hvetja bæjarbúa til að flokka rusl og góð byrjun á því er að endurvinna fernur. Nemendur hafa því opnað Facebooksíðu og gert kynningarmyndband um flokkun ferna. Þeir vonast til þess að myndbandið verði hvatning og vekji fólk til umhugsunar um flokkun heimilissorps.

http://www.facebook.com/Endurvinnsla
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn