Nemendur af Suðurnesjum í öllum toppsætum Lögregluskólans
Nú í jólamánuðinum fór brautskráning nemenda Lögregluskóla ríkisins fram við hátíðlega athöfn í Bústaðakirkju í Reykjavík. Að þessu sinni voru brautskráðir 37 nemendur en þeir hófu nám við skólann í janúarbyrjun 2003. Nemendur af Suðurnesjum voru að gera góða hluti í skólanum í ár og röðuðu sér í toppsæti í einkunnum, auk þess sem lögreglumaður skólans er einnig af Suðurnesjum.
Í ræðu skólastjóra Lögregluskólans, Arnars Guðmundssonar, rakti hann m.a. starfsemi og starfsaðstöðu skólans á þessu ári og nefndi þar sérstaklega aukningu í framhaldsmenntun lögreglumanna.
Arnar beindi þeim orðum sínum til brautskráningarnemendanna að það væri ekki nóg að afla sér þekkingar því að framundan væri í lögreglustarfi þeirra að breyta þekkingunni yfir í hegðun og að hver og einn, sem sinnti lögreglustarfi, yrði hverju sinni að gera réttu hlutina. Arnar sagði að það gæfi auga leið að rétt vinnubrögð lögreglu, vel uppfærðar, vandaðar og umfram allt réttar skýrslur lögreglu um viðfangsefni sín, þar sem lögreglan lýsti því hvernig hún gerði rétta hluti á réttan hátt, skiptu sköpum til að rétt og trúverðug afgreiðsla og meðferð mála ættu sér stað hjá ákæruvaldi og síðan hjá dómsvaldi. Íslenskt réttarkerfi byggði á þeirri grundvallarreglu að í opinberum málum skyldi upplýsa sannleikann.
Í lok ræðu sinnar lagði skólastjóri á það áherslu við væntanlega lögreglumenn að þeir nytu lögreglumenntunarinnar og vonaði að þeir yrðu trúverðugir málsvarar hennar. Hann bað þá að njóta ánægju í lögreglustarfi, stunda réttu vinnubrögðin og vanda framkomu sína en það réði mestu um árangur þeirra í starfi. Bað hann þá sérstaklega að sýna háttvísi og vera heiðarlega lögreglumenn.
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hélt ræðu við brautskráninguna og sagði m.a. frá því að lögreglustarfið væri mikils metið meðal Íslendinga og fáar stofnanir þjóðfélagsins nytu meira trausts en lögreglan. Í því fælist þess vegna ekki lítil ábyrgð, að slást í hóp þeirra sem hafa aflað lögreglunni þessa trausts. Brýndi hann því fyrir nemendunum að mikið væri í húfi að ekki félli blettur á hinn góða starfsheiður lögreglunnar og fyrir hann skyldu þeir ganga fram af stolti og virðingu. Sömuleiðis hvatti dómsmálaráðherra unga og ferska lögreglumenn til að láta að sér kveða við mótun framtíðarinnar á starfsvettvangi sínum.
Hæstu meðaleinkunn á lokaprófum náði Einar Júlíusson en hann náði meðaleinkunninni 9,15. Í næstu sætum þar á eftir voru Heiða Rafnsdóttir með meðaleinkunnina 9,06 og Bjarney Sólveig Annelsdóttir með meðaleinkunnina 8,85. Meðaleinkunn allra nemendanna var 7,97.
Dómsmálaráðherra afhenti fjórum nemendum sérstaka viðurkenningu fyrir að ná glæstum árangri í íslensku. Þessir nemendur eru Eiríkur Rafn Rafnsson, Heiða Rafnsdóttir, Maríanna Said og Olivera Ilic.
Þeir lögreglufulltrúar sem starfa við Lögregluskólann völdu úr hópi nemenda „Lögreglumann skólans” og varð Bjarney Sólveig Annelsdóttir fyrir valinu.
Við athöfnina hélt Jóhannes Snævar Harðarson ræðu fyrir hönd nemenda og Lögreglukór Reykjavíkur söng tvö lög. Þess ber að geta sérstaklega að með kórnum sungu þrír kennarar skólans og fimm nemendur auk þess sem einn þeirra fimm spilaði á trompet með kórnum í öðru laganna.
Þeir 37 nemendur sem voru brautskráðir að þessu sinni hafa lokið grunnnámi frá Lögregluskóla ríkisins og öðlast þekkingu til að takast á við öll almenn löggæslustörf. Þeir geta nú sótt um þær lausu stöður lögreglumanna sem í boði eru og, eins og fram kom í ræðu dómsmálaráðherra, er langþráð markmið að nást því að í landinu er nú lögreglumenntað fólk fyrir hendi til að skipa allar stöður lögreglumanna.
Ljósmynd: Kunnugleg andlit úr lögreglunni á Suðurnesjum. Bjarki Sigurðsson, Bjarney Sólveig Annelsdóttir, Brynjar Stefánsson, og Einar Júlíusson.