Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nemakort Strætó komin í sölu
Mánudagur 12. janúar 2015 kl. 15:32

Nemakort Strætó komin í sölu

– fyrir nemendur með lögheimili á Suðurnesjum

Nemakortin gilda á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu sem og á milli þessara tveggja staða. Kortið gildir út vorönn 2015 og kostar kr. 82.000,-. Greiða þarf kortið fyrirfram inn á reikning Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Greiðslu skal leggja inn á reikning 0142-26-11546, kt. 640479-0279.

Senda þarf eftirfarandi upplýsingar á netfangið [email protected].

· nafn
· kennitölu
· staðfestingu á skólavist
· kvittun fyrir greiðslu korts
· mynd

Strætó mun framleiða kortið og senda nemendum heim á lögheimili sitt. Allar nánari upplýsingar er að finna á straeto.is og hjá þjónustuveri Strætó í síma 540 2700.

Vegna breytinga á reglum LÍN þurfa þeir nemendur sem hafa rétt á jöfnunarstyrk að sækja um hann sjálfir til LÍN.  Þessi breyting hefur það í för með sér að þegar greiðslur berast frá LÍN fær nemandinn allan ferðastyrkinn beint til sín.  Rétt er að benda á að nemandi ber alla ábyrgð á að sækja um styrk í jöfnunarsjóð LÍN.  Síðasti umsóknarfrestur á vorönn er 15. febrúar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024