Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Föstudagur 8. október 1999 kl. 22:06

NEKTARDANSSTAÐURINN CASINO: UPPNÁM Í BÆJARSTJÓRN REYKJANESBÆJAR

Jóni M. Harðarsyni var veitt takmarkað áfengisveitingaleyfi til 2 vikna, á aukafundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sl. föstudagskvöld. Jón neitar að taka við leyfinu. Tvær tillögur voru lagðar fram, en báðar felldar. Fulltrúar J-listans mótmæltu harðlega fundarsköpum þegar forseti bæjarstjórnar gerði fundarhlé til að meirhlutinn gæti hugsað upp nýja tillögu. Þeir neituðu að greiða atkvæði þegar hún var lögð fram, en aðrir bæjarfulltrúar greiddu allir atkvæði með henni. Jón M. Harðarson veitingamaður sótti um áfengisveitingaleyfi fyrir fyrirtæki sitt Strikið hf. í Grófinni, Keflavík, fyrir nokkrum vikum síðan. Hann hafði þegar uppfyllt öll skilyrði til reksturs skemmtistaðar. Jón kom fram í fjölmiðlum áður en málið fór til afgreiðslu hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar, og skýrði frá því að hann hyggðist opna nektardansstað. Bæjarstjórn tók málið til umfjöllunar 21.september sl. og synjaði Jóni um leyfið. Jón kærði niðurstöðu bæjarstjórnar fyrir úrskurðarnefnd um áfengismál. Úrskurðarnefnd felldi úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar um að synja Jóni M. Harðarsyni um áfengisveitingaleyfi og lagði fyrir bæjarstjórn að veita umræddum veitingamanni leyfið. Á fundi bæjarstjórnar, föstudaginn 8.október, lögðu bæjarfulltrúar meirihlutans fram tvær tillögur um áfengisveitingaleyfi fyrir Strikið hf. Böðvar Jónsson (D) lagði til að Jóni M. Harðarsyni yrði veitt leyfi til eins árs og heimilaður tími áfengis yrði frá klukkan 12:00 á hádegi til 01:00 á virkum dögum og frá klukkan 12:00-03:00 um helgar. Tillagan var felld, 5:6. Næst lögðu Skúli Þ. Skúlason (B), Ellert Eiríksson (D) og Jónína Sanders (D) fram tillögu sem fól í sér að Jóni yrði veitt leyfið til eins árs og sala á áfengis væri leyfð frá klukkan 10:00 á morgnana til 23:00 dag hvern. Sú tillaga var einnig felld, 3:4 og fjórir sátu hjá. Fulltrúar minnihlutans tóku allt annan pól í hæðina (að Ólafi Thordersen frátöldum sem lagði fram bókun þess efnis að veita ætti Jóni leyfið) og sögðu að málið væri þegar afgreitt að þeirra áliti. Þeir drógu niðurstöðu úrskurðarnenfndar í efa og Jóhann Geirdal (J) varpaði þeirri spurningu fram hvort bæjarstjórn hefði vald til að veita slíkt leyfi eða hvort bæjarfulltrúar væru einhverjar strengjabrúður. „Okkur ber ekki skylda að veita slík leyfi, enda er umræddur skemmtistaður ekki sambærilegur við aðra skemmtistaði í bænum. Við eigum heldur ekki að vera tímaverðir fyrir Dómsmálaráðuneytið. Það er akkurat enginn munur á hvort við veitum takmarkað eða fullt áfengisveitingaleyfi", sagði Jóhann Geirdal. Ellert Eiríksson bæjarstjóri svaraði orðum Jóhanns á þá leið að bæjarstjórn ætti að hlýta þessum niðurstöðum athugasemdalaust, það væri lýðræði. Mönnum var heitt í hamsi á fundinum og sumir fundargestir gátu ekki setið á sér að tjá sig um málið. Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjarstjórnar, áminnti gesti um að hafa hljóð og ákvað að gera fundarhlé til þess að meirihlutinn gæti hugsað upp aðra tillögu, því hinar höfðu báðar verið felldar. Kristján Gunnarsson mótmælti þessum fundarsköpum og sagði að málinu væri lokið. Forseti svaraði því til að þeim væri skylt að ljúka málinu. Bæjarfulltrúar greiddu þá atkvæði um hvort taka ætti fundarhlé eður ei. Allir samþykktu fundarhlé nema fulltrúar J-listans. Eftir rúman klukkutíma gengu fulltrúar meirihlutans aftur inn á fundinn og lögðu fram tillögu um að Jóni M. Harðarsyni yrði veitt takmarkað vínveitingaleyfi til tveggja vikna. Þá steig Jóhann Geirdal aftur í pontu og lagði fram bókun minnihlutans. Í henni kom fram að fulltrúar J-listans efuðust um réttmæti síðari hluta fundarins þar sem dagskráin hefði verið tæmd, mælendaskrá lokað og afgreiðslu lokið. Þeir töldu því að niðurstöður síðari hluta fundarins væru ógildar, hverjar sem þær yrðu. Tillaga meirihlutans var borin undir atkvæði og samþykkt 7:4. Að fundi loknum sagðist Jón M. Harðarson ekki ætla að opna staðinn nema hann fengi fullt áfengisveitingaleyfi. Hann sagðist einnig ætla að halda áfram að reka málið og telur sig hafa verið beittan órétti við afgreiðslu málsins. Endanleg niðurstaða í þessu umtalaða máli virðist því ekki vera í sjónmáli.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024