Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Nefbraut mann á H.INN
Fimmtudagur 6. september 2007 kl. 17:36

Nefbraut mann á H.INN

Karlmaður um tvítugt hefur verið ákærður fyrir að ráðast á karlmann á veitingastanum H.INN í Reykjanesbæ þann 23. apríl 2006. Hinn ákærði sagði í samtali við Vísi.is, sem greinir frá málinu, að hann hefði viðurkennt brot sitt. „Það var hiti í mönnum. Maðurinn ýtti félaga mínum og ég gaf honum hnefahögg. En þetta var ekkert alvarlegt," sagði árásarmaðurinn við Vísi. Hann kvaðst eiga von á skilorðsbundnum fangelsisdóm. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024