Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Nauðlenti á leið til Íslands
Þriðjudagur 17. október 2006 kl. 13:07

Nauðlenti á leið til Íslands

Þota frá norska flugfélaginu Braathens, sem var á leið frá Osló til Keflavíkur, nauðlenti í gær í Stavangri, eftir að sprunga kom í framrúðu vélarinnar. Eittundrað og átta farþegar voru um borð í vélinni sem var af gerðinni Boeing 737.

Talsmaður Braathens segir að þetta hafi allt gengið rólega fyrir sig. Það sé regla að hætta flugi eins fljótt og auðið er, ef sprungur sjáist í rúðum. Því hafi flugstjórinn ákveðið að nauðlenda á næsta flugvelli, sem var Stavangur.

Önnur vél var send til Stavangurs til þess að flytja farþegana 108 til Keflavíkur.

www.visir.is

 

VF-mynd/ Vél af gerðinni Boeing 737


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024