Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Náttúruverndarsamtök lýsa vanþóknun
Þriðjudagur 17. nóvember 2009 kl. 15:19

Náttúruverndarsamtök lýsa vanþóknun

Níu náttúruverndarsamtök á Íslandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau lýsa „vanþóknun á ómálefnalegri auglýsingaherferð fyrirtækja á Suðurnesjum gegn ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínur,“ eins og segir í yfirlýsingunni. „Álver í Helguvík með allt að 360 þúsund tonna ársframleiðslu með tilheyrandi orkuöflun og umhverfisáhrifum er ekki einkamál Suðurnesjamanna. Ekki er útséð með að hægt verði að útvega alla þá orku sem fyrirtækið telur sig þurfa, auk þess sem orkuþörf Norðuráls í Helguvík hefur verið ranglega metin í opinberum gögnum“.


Samtökin segja að álverið myndi taka til sín nær alla háhitaorku sem fyrirséð er að aflað verði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, auk virkjana í neðri Þjórsá. Jarðvarmavirkjanir sem álverið þarf mundu auka á brennisteinsmengun á höfuðborgarsvæðinu en hún fer nú þegar yfir heilbrigðismörk við ákveðnar aðstæður. Línulagnir hefðu víða áhrif, m.a. á vatnsverndarsvæði höfuðborgarbúa. Með Urriðafossvirkjun væri framtíð eins stærsta villta laxastofns Íslands stefnt í voða - en sá stofn býr í Þjórsá. Krafa fyrirtækja á Suðurnesjum um orku til álvers í Helguvík er á við heila Kárahnjúkavirkjun á 100% láni á ábyrgð orkufyrirtækja í eigu þjóðarinnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


„Íslendingar hafa horft upp á skammsýni, græðgi og heimsku í aðdraganda hruns hins íslenska efnahagskerfis. Stafar það af fúski, agaleysi og veikburða stjórnmála- og eftirlitsstofnunum gagnvart yfirgangi hagsmunahópa. Herferð fyrirtækja á Suðurnesjum í þágu alþjóðlegra stórfyrirtækja er ábyrgðarlaus og ómálefnalegt innlegg í umræðuna,“ segir í yfirlýsingunni sem er undirrituð af eftirtöldum aðilum:

Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST)
SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi
Sól á Suðurnesjum
Sól á Suðurlandi
Framtíðarlandið
Sól í Straumi
Náttúruverndarsamtök Suðurlands
Náttúruverndarsamtök Íslands.


Mynd:
Framkvæmdum við álver Norðuráls í Helguvík mótmælt fyrr á árinu. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson