Náttúrustofa Reykjaness með sérstöðu í sjávarlíffræði
Jón Baldur Sigurðsson, fyrrverandi prófessor í sjávarlíffræði, hefur verið ráðinn sem forstöðumaður Náttúrustofu Reykjaness, en Jón Baldur starfar í dag sem forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands. Átta umsækjendur voru um stöðuna.Með ráðningu Jóns Baldurs er verið að marka Náttúrustofu Reykjaness sérstöðu á sviði sjávarlíffræði. Ætlunin er að styrkja tengslin við Fræðasetrið í Sandgerði og Botndýrarannsóknarstöðina (BIOICE), en stöðin hefur verið viðurkennd af Evrópusambandinu sem „einstæð vísindaaðstaða“ (large scale facility).Náttúrustofa Reykjaness er sjötta náttúrustofan sem stofnuð er, en fyrirhugað er að stofan taki formlega til starfa síðar á þessu ári. Þau bæjarfélög sem standa að Náttúrustofu Reykjaness eru Grindavíkur- og Sandgerðisbær.Helstu hlutverk náttúrustofu er að safna gögnum og varðveita heimildir um náttúrufar og stuðla að almennum náttúrurannsóknum, einkum í viðkomandi landshlutum. Stuðla að æskilegri landnýtingu, náttúruvernd og fræðslu um umhverfismál og að veita fræðslu um náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga.