Náttúrusögur í Suðsuðvestur
 Olga Bergmann opnar sýninguna Náttúrusögur í sýningarrýminu Suðsuðvestur Hafnargötu 22 Reykjanesbæ laugardaginn 9. Júlí klukkan 15:00.
Olga Bergmann opnar sýninguna Náttúrusögur í sýningarrýminu Suðsuðvestur Hafnargötu 22 Reykjanesbæ laugardaginn 9. Júlí klukkan 15:00.Olga hefur undanfarið unnið úr hugmyndum um fútúristaskar þróunarkenningar sem byggja á möguleikum erfðavísindanna en einnig skoðað hvernig náttúrugripasöfn til dæmis stilla sýningargripum sínum fram í sviðsettu umhverfi sem hermir eftir náttúrunni.
Á sýningunni í Suðsuðvestur eru ný verk unnin á þessu ári- hvít dýr í náttúrulegu umhverfi, steingervingar og stutt náttúrulífsmynd.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				