Bygg
Bygg

Fréttir

Napurleg tíðindi fyrir æðrulausa Grindvíkinga
Guðbrandur Einarsson flytur ræðuna við eldhúsdagsumræður í gær. Mynd: SKjáskot úr útsendingu RÚV.
Fimmtudagur 13. júní 2024 kl. 16:04

Napurleg tíðindi fyrir æðrulausa Grindvíkinga

Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, gerði málefni Grindvíkinga að umræðuefni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gærkvöldi.

„Margt hefur verið gert til þess að styðja við íbúa Grindavíkur og til að verja þá innviði sem Suðurnesin treysta á og þurfa á að halda, en er búið að gera nóg? 
Er nóg að styðja bara stærstan hluta hópsins og er þá í lagi að sleppa hinum? Þegar Fasteignafélagið Þórkatla var stofnað var hreinlega tekin meðvituð ákvörðun, um að skilja ákveðna hópa eftir,“ sagði Guðbrandur Einarsson m.a. í ræðu sinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hér að neðan er ræðan sem Guðbrandur flutti í gær.

Kæru landsmenn.

Að horfa til baka yfir störf vetrarins hér á þinginu er ágætis siður. Af mörgu er að taka og í augum margra hlýtur brotthvarf forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur úr íslenskum stjórnmálum að vega þungt.

Annað sem verður skráð í sögubækurnar er að lögbrot við sölu Íslandsbanka hafi valdið því að ráðherra var refsað, fyrst með tilfærslu yfir í annan ráðherrastól en síðar með einhverri undarlegustu stöðuhækkun síðari tíma.

En fyrir mig sem þingmann Suðurkjördæmis og Suðurnesjamann er stærsta málið þær hörmungar sem dunið hafa yfir í Grindavík.


Hamfarirnar sem hófust þann 10. nóvember gerðu það að verkum að íbúar Grindavíkur, allir sem einn, þurftu að yfirgefa sveitarfélagið og hafa ekki getað komið til baka.

Sem betur fer erum við Íslendingar dugleg við að takast á við erfiðar aðstæður en staða Grindavíkur og íbúa hennar er einsdæmi í sögunni, í það minnsta frá Eyjagosinu fyrir 50 árum síðan og vonandi mun ekkert annað sveitarfélag þurfa að takast á við áskoranir sem þessar.

Margt hefur verið gert til þess að styðja við íbúa Grindavíkur og til að verja þá innviði sem Suðurnesin treysta á og þurfa á að halda, en er búið að gera nóg? 
Er nóg að styðja bara stærstan hluta hópsins og er þá í lagi að sleppa hinum?

Þegar Fasteignafélagið Þórkatla var stofnað var hreinlega tekin meðvituð ákvörðun, um að skilja ákveðna hópa eftir.

Að miða eingöngu við brunabótamat kom sér illa fyrir marga og þá sérstaklega ungt fólk.

Ofan á það voru sett ýmis skilyrði sem gera það að verkum að fjöldi einstaklinga fær ekki lausn sinna mála. Það getur ekki selt eignir sínar og þarf á sama tíma að greiða afborganir og svimandi vexti af þessum eignum.

Þetta mun auðvitað leiða af sér fjöldagjaldþrot þar sem fólk mun að sjálfsögðu gefast upp.

Minni fyrirtæki hafa allt frá því að þessir atburðir hófust beðið með kökkinn í hálsinum eftir úrlausn sinna mála. Nú eru liðnir 7 mánuðir og ekkert bólar á niðurstöðu. 


Stóru sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík hafa reynt, eins og kostur er, að halda úti starfsemi í bænum en nú er svo komið að þau eru líka farin að segja upp fólki. 
Það er erfitt að komast til Grindavíkur og erfitt að halda úti starfsemi þar sem innviðir eru ekki í lagi.

Það gefur auga leið að þessi fyrirtæki eiga sér engan rekstrargrundvöll við aðstæður sem þessar. Óskir þeirra hafa meðal annars verið, að þau verði hreinlega keypt upp, til þess að geta komið sér upp aðstöðu annars staðar, eða þá að þeim verði veittir einhvers konar flutnings- eða leigustyrkir.

Eftir því sem ég kemst næst eru engar hugmyndir á borðinu um að koma til móts við þessa aðila og það er sárt til þess að hugsa að þeirra bíði ekkert annað en gjaldþrot.

Auðvitað fylgir því áhætta að vera í rekstri, en annars vegar þá bera menn ekki ábyrgð á því þegar jörðin rofnar undir þeim og hraun vellur út og hins vegar þá þurfa stjórnvöld að horfa til þess hvort sé kostnaðarsamara – að styðja fyrirtækin í að halda sér á floti eða að horfa upp á fjöldagjaldþrot grindvískra frumkvöðla.

Þá hefur sveitarfélagið sjálft, í samstarfi við aðra aðila, m.a. Verkalýðsfélag Grindavíkur óskað eftir því að veittur verði afsláttur af stimpilgjöldum vegna kaupa Grindvíkinga á húsnæði utan sveitarfélagsins, að Grindvíkingar geti tekið út séreignasparnað sinn skattfrjálst og að lögin um hlutdeildarlán verði útvíkkuð sérstaklega fyrir Grindvíkinga.

Allt myndi þetta hjálpa fjölskyldum til að standa af sér storminn án verulegs tilkostnaðar fyrir ríkið.

Þrátt fyrir það hefur ekkert af þessu orðið að veruleika og næsta víst að ekkert gerist í þessum málum á þessu þingi sem nú er er að klárast.

Það eru napurleg tíðindi fyrir Grindvíkinga.

Grindavíkurbær sem hefur um langa hríð verið hópi fjársterkustu sveitarfélaga á Íslandi berst nú við að halda sjó. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að ekki fari fram skólahald í Grindavík á næsta skólaári, yngri börnin úr Grindavík hvött til þátttöku í íþróttastarfi í þeim sveitarfélögum sem þau hafa flutt til og 150 starfsmönnum sveitarfélagsins hefur verið sagt upp vegna stöðunnar.

Tekjugrunnur sveitarfélagsins er algjörlega brostinn, því með flutningi íbúa í önnur sveitarfélög hverfur útsvarið. Sveitarfélagsins bíða hins vegar útgjöld upp á milljarða eigi að koma sveitarfélaginu í fyrra horf.

Virðulegi forseti.

Ég vil nota þetta tækifæri og lýsa aðdáun minni á því æðruleysi sem Grindvíkingar hafa sýnt, allan þennan tíma, þá samstöðu sem ríkt hefur, og þann vilja sem Grindvíkingar sýna, í þeirri viðleitni að endurreisa samfélagið sitt. Það er hins vegar okkar Alþingismanna að standa með þeim og styðja þau í þeim erfiðu aðstæðum sem þau eiga við að glíma á svo mörgum sviðum.

Við erum enn í miðri á og megum ekki gleyma Grindavík.

Það dugar ekki að hjálpa bara sumum. Við þurfum að hjálpa öllum.

Kæru landsmenn. Gleðilegt sumar.