Fréttir

  • Nanna Bryndís fékk æðstu viðurkenningu Lions
    Frá afhendingu viðurkenninganna. F.v.: Pálmi Hannesson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Birgir Sveinsson afi Nönnu og Jenný K. Harðardóttir form. í Lionsklúbbnum Garður.
  • Nanna Bryndís fékk æðstu viðurkenningu Lions
    Nanna Bryndís Hilmarsdóttir.
Þriðjudagur 28. október 2014 kl. 10:19

Nanna Bryndís fékk æðstu viðurkenningu Lions

– Pálmi Hannesson fékk viðurkenningu sem Progressive Melwin Jones félagi.

Þann 14. október síðastliðinn hélt Lionshreyfingin upp á Alþjóða sjónverndardag Lions.  Á þessum tímamótum veitti Lionsklúbburinn Garður tveimur aðilum Melwin Jones viðurkenningar, en það er æðsta viðurkenning sem Lionsklúbbur getur veitt.

Melwin Jones var aðalhvatamaður og stofnandi Lionshreyfingarinnar á sínum tíma, var það árið 1917. Þau sem hlutu þessa viðurkenningu voru Nanna Bryndís Hilmarsdóttir í hljómsveitinni Of Monsters and Men fyrir hennar frábæra starf, en eins og flestir vita þá hefur hún ásamt hljómsveitinni náð mjög langt í tónlistinni bæði hér á landi og ekki síður erlendis, verið góð landkynning og fyrirmynd ungs fólks.  

Þá fékk  Pálmi Hannesson félagi í Lionsklúbbnum Garður  viðurkenningu sem Progressive Melwin Jones félagi fyrir hans störf í þágu Lionshreyfingarinnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024