Nánast ómögulegt að fá leigðan ýsukvóta
Þriðjungs niðurskurður veiðiheimilda í ýsu er farinn að segja til sín. Nánast ómögulegt er að fá leigðan ýsukvóta öfugt við það sem hefur verið undanfarin ár þegar nægt framboð var, að því er segir á vef Landssambands smábátaeigenda.
Afleiðingar þessa eru margvíslegar m.a. fyrir þá sem leigt hafa til sín ýsu á undanförnum árum. Margir þeirra eru með nægar veiðiheimildir í þorski en standa nú frammi fyrir því að geta ekki nýtt sér þær þar sem ýsa fæst alltaf með þorskinum. Einnig hefur þetta þær afleiðingar að framboð á línuveiddri ýsu minnkar og þar með útflutningsverðmæti þar sem minna fæst fyrir ýsu sem veidd er í troll. Í þriðja lagi kemur þetta niður á þorskveiðunum, þær er ekki hægt að stunda með eins mikilli hagkvæmni og verið hefur, segir á vef LS.
LS hefur rætt þessi mál við sjávarútvegsráðuneytið og mun á næstu dögum, ef engar breytingar verða á, senda Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúðnaðarráðherra hugmyndir til umræðu um hvernig megi liðka til með viðskipti með veiðiheimildir á ýsu.
Heildarýsuafli síðast liðins fiskveiðiárs varð rúm 89 þús. tonn. Hlutur krókaaflamarks í þeirri tölu var 21 þús tonn eða 24% heildaraflans. Hlutdeild þeirra í ýsunni er hins vegar 15%. Mismunurinn hefur komið með því að leigja til sín úr aflamarkskerfinu og flutningi milli ára, en alls bættu þeir við sig á fimmtaþúsund tonna eða um rúman fjórðung sinna veiðiheimilda í ýsu á sl. fiskveiðiári með því að leigja veiðiheimildir af stærri skipum.