Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Námsstyrkir Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Keflavík
Miðvikudagur 9. júlí 2003 kl. 12:43

Námsstyrkir Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Keflavík

Árlegum námsstyrkjum í Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Keflavík hefur verið úthlutað. Eftirtaldir námsmenn fengu styrk að upphæð kr. 125.000 í ár: Gunnhildur Þórðardóttir en hún lauk B.A. gráðu í listfræði frá Listháskólanum í Cambridge, Jónína Helga Hermannsdóttir, sem lauk Kandídatsprófi í Afbrotafræði frá Háskólanum í Osló, Kristján Guðmundsson sem útskrifaðist með B.S. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Margrét Aðalsteinsdóttir en hún útskrifaðist með B.S. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands.Dómnefndin sem sá um valið á styrkþegum er skipuð eftirtöldum aðilum:

Ólafur Arnbjörnsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, formaður dómnefndar
Skúli Thoroddsen, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs.

Í gegnum tíðina hefur Sparisjóðurinn í Keflavík stutt við bakið á námsfólki frá Suðurnesjum með ýmsum hætti og eru styrkveitingarnar hluti af Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins. Hjá Sparisjóðnum stendur námsmönnum til boða margvísleg fjármálaþjónusta og má þar m.a. nefna hagstæð lán til námsmanna vegna tölvukaupa og bókastyrki sem úthlutaðir eru til 25 námsmanna í byrjun hverrar skólaannar.
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur ætíð styrkt íþrótta- og menningarstarf á starfssvæði sínu og eru námsstyrkirnir mikilvægur hluti af því starfi. Námsstyrkir hafa nú verið veittir þrettán ár í röð og hafa samtals 49 námsmenn fengið styrki.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024