Námskeið um Ísland og Evrópu hjá MSS
Evrópustofa og MSS halda námskeið í kvöld um Ísland og Evrópu á tímamótum. Á námskeiðinu er farið yfir Evrópumálin á aðgengilegan og áhugaverðan hátt út frá sjónarhóli Íslands. Það hentar öllum sem hafa áhuga á Evrópumálum og engrar sérþekkingar er krafist.
Á námskeiðinu er farið yfir sögu ESB, stofnanir þess og uppbyggingu, og hvernig ákvarðanir eru teknar innan sambandsins. Þá verður fjallað um umsókn Íslands og aðildarviðræðurnar sem nú standa yfir og hvaða afleiðingar möguleg aðild Íslands að ESB geti haft fyrir Ísland. Loks er skoðað hvernig ESB hefur brugðist við fjármálakreppunni og hvaða áskoranir eru framundan fyrir framtíð Evrópusamvinnu. Námskeiðið er á vegum Evrópustofu, upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi.
Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera vel kunnugir grundvallarhugtökum í umræðunni um Evrópumál og vera betur í stakk búnir til að taka þátt í umræðunni á gagnrýninn og upplýstan hátt. Námskeiðið er haldið í kvöld, þann 25. febrúar hjá MSS að Krossmóa 4a kl. 19:00 til 22:00 og nauðsynlegt er að skrá þátttöku sína. Verð 1.000 krónur
Kennari námskeiðsins er Auðbjörg Ólafsdóttir, stjórnmála- og hagfræðingur.