Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Nám í fótaaðgerðafræðum hjá Keili
Föstudagur 29. janúar 2016 kl. 09:30

Nám í fótaaðgerðafræðum hjá Keili

Keilir festi nýverið kaup á öllum tækjum og búnaði Fótaaðgeraðskólans sem hefur starfað undanfarin ár í Snyrtiakademíunni í Kópavogi. Stefnt verður að því að taka inn fyrstu nemendur í námið á komandi hausti en einungis verður tekið við tíu nemendum í hvert skipti.

Fótaaðgerðarnámið hjá Keili er hið eina sinnar tegundar á landinu en mikil og aukin þörf er fyrir sérfræðinga á þessu sviði einkum vegna hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar og vaxandi íþróttaiðkunnar almennings. Um er að ræða hagnýtt og spennandi námstækifæri fyrir dugmikið fólk með mikla atvinnumöguleika.

Námið er á framhaldsskólastigi og verður kennt í aðstöðu Keilis á Ásbrú og eru örar strætóferðir milli Höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesbæjar. Þá hafa nemendur aðgang að ódýrum nemendaíbúðum á svæðinu. Fótaaðgerðarnám er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu og lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Að loknu náminu geta nemendur sótt um löggildingu sem fótaaðgerðarfræðingar.

Nánari upplýsingar um námið, inntökuskilyrði og námsgjöld verður hægt að nálgast á heimasíðu Keilis fljótlega. Áhugasömum er bent á að skrá nafn og netfang á póstlista eða hafa samband við Keili í síma 578 4000 eða á netfangið [email protected].

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024