Nám á öllum stigum fléttast saman
- fjölbreytt og skapandi nám í nýrri menntastefnu Reykjanesbæjar
Reykjanesbær hefur gefið út nýja menntastefnu þar sem lögð er rík áhersla á þátttöku unga fólksins. Þessari nýju menntastefnu er ætlað að vera heildstæð áætlun um það hvernig nám á öllum skólastigum, leikur, listir og íþróttir fléttast saman og stuðlar sameiginlega að því að undirbúa unga fólkið sem best undir það að vera virkir þátttakendur í samfélagi 21. aldarinnar.
Í nýrri menntastefnu er lögð áhersla á aukna þátttöku unga fólksins sjálfs, öryggi í starfi og leik, læsi í víðum skilningi og merkingarbært, fjölbreytt og skapandi nám. Áherslur nýrrar menntastefnu munu byggja upp réttláta, hamingjusama og sjálfbæra framtíð fyrir börnin í Reykjanesbæ.
Hér má nálgast menntastefnuna í heild sinni