Nágranninn kom í veg fyrir að þjófarnir kæmust í burtu með þýfið
„Ég tel mig vera frekar heppna,“ sagði María Sigurðardóttir, eigandi Hljómvals á Hafnargötu 28. Innbrotsþjófarnir brutust inn í Hljómval um klukkan fimm í nótt að aftanverðu þar sem þeir brutu upp hurðina. Þeir tóku allar tölvur, skemmdu hluti og reyndu að ná eins miklu og þeir gátu. Tryggingarnar telja þetta tjón vera metið á nokkrar milljónir króna. Lögreglan hefur mennina í haldi.
„Ein kona sem býr hérna í nágrenni við verslunina var vöknuð mjög snemma í morgun og tók eftir einhverjum óvenjulegum umgangi hérna við verslunina. Hún tók sig til og hjólaði hérna framhjá og sá þá nokkra aðila vera bera hluti úr versluninni út í bíl. Ég tel mig vera frekar heppna að hún hafi séð þetta gerast því annars væri ekkert öruggt að ég fengi allt til baka aftur,“ sagði María.
María sagði þó ekkert vera öruggt í þessu máli þar sem ekki væri allt komið í leitirnar. „Þetta tjón gæti verið metið á nokkrar milljónir króna en óvíst er hvernig ástandið er á tölvunum og hugbúnaði sem í þeim eru. Þetta eru viðkvæmir hlutir en lítið hnjask getur skemmt innihaldið og hugbúnaðinn.“