Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Nágrannavarsla við Lágseylu í Reykjanesbæ
Mánudagur 14. september 2009 kl. 18:00

Nágrannavarsla við Lágseylu í Reykjanesbæ

Nágrannavörslu hefur verið komið á Lágseylu í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum og Fífudal því mun Lágseyla verða fimmta nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu síðasta sumar en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, starfsmaður umhverfissviðs og fulltrúar frá Lögregluni á Suðurnesjum afhentu íbúum götunnar merki og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við Lágseylu.


Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann USK í síma 421-6700 eða á [email protected]. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu“.