Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Nágrannavarsla við Birkiteig í Reykjanesbæ
Sunnudagur 14. september 2008 kl. 14:13

Nágrannavarsla við Birkiteig í Reykjanesbæ

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nágrannavörslu hefur verið komið á við Birkiteig í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman.

Reykjanesbær tók formlega upp „Nágrannavörslu“ í sumar en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.

Guðlaugur H. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, starfsmaður umhverfissviðs, afhentu íbúum götunnar merki og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við gatnamót Birkiteigs og Vesturgötu.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann USK í síma 421-6700 eða á [email protected].  Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu“.

Mynd: Íbúar við Birkiteig í Reykjanesbæ ásamt Guðlaugi H. Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra Umhverfissviðs Reykjanesbæjar.

Mynd-VF/IngaSæm