Nafn mannsins sem lést í sjóslysi við Innri-Njarðvík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tilkynnt nafn mannsins sem lést þegar sportbátur sökk í Faxaflóa skammt frá Njarðvíkurhöfn þann 22. júlí síðatliðinn.
Maðurinn hét Hörður Garðarsson. Hörður var fæddur 1958, uppalinn í Keflavík og bjó í Reykjavík. Hann lætur eftir sig fjögur börn, þrjú þeirra uppkomin.