Bygg
Bygg

Fréttir

Næst sterkasta vígi flokksins á landinu
Miðvikudagur 1. nóvember 2017 kl. 11:00

Næst sterkasta vígi flokksins á landinu

-„Einstakur árangur“, segir Birgir Þórarinsson, oddviti Miðflokksins

„Árangur Miðflokksins í kosningunum er einstakur en flokkurinn var stofnaður formlega þremur vikum fyrir kosningar. Suðurkjördæmi kom mjög sterkt inn og erum við næst sterkasta vígi flokksins á landsvísu á eftir kjördæmi formannsins, Sigmundar Davíðs. Það var virkilega ánægjulegt að ferðast um kjördæmið í aðdraganda kosningana og hitta kjósendur, enda var veganestið, góð málefni á stefnuskrá flokksins, afar gott. Má þar nefna endurskipulagningu á fjármálakerfinu, lækkun vaxta og raunhæfar áætlanir um afnám verðtryggingar. Við vorum með kraftmikið fólk á framboðslistanum og kosningastjórnin var mjög öflug. Allt skiptir þetta miklu. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem studdu okkur og öllu því frábæra fólki sem vann með okkur um allt kjördæmið og gerði þetta að veruleika. Miðflokkurinn hlakkar til starfsins framundan á Alþingi og mun vinna að heilum hug að bættum lífskjörum fyrir alla á Íslandi,“ sagði Birgir Þórarinsson, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi eftir kosningar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn