Nærri 40 manns vildu í forstjórastól HS Veitna
Páll Erland hefur verið ráðinn nýr forstjóri HS Veitna. Hann tekur við af Júlíusi Jóni Jónssyni sem mun láta af störfum í lok árs eftir 40 ára farsælt starf fyrir félagið.
Starfið var auglýst í ágúst og sóttu tæplega 40 manns um starfið.
Páll er framkvæmdastjóri Samorku, en áður var hann framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Hann mun hefja störf á nýju ári og tekur við starfinu af Júlíusi J. Jónssyni sem gegnt hefur því í fjörutíu ár.