Nægur þrýstingur búinn að byggjast upp í kerfinu
Líkur á að það dragi til tíðinda á næstu 7 – 10 dögum
Í gærmorgun mældist aukin smáskjálftavirkni á Sundhnúkgígaröðinni. Virknin stóð yfir í um 50 mínútur og eru að öllum líkindum merki um að þrýstingur sé að aukast í kerfinu. Síðustu viku hefur fjöldi skjálfta á dag farið hægt vaxandi.
Samkvæmt líkanreikningum sem gerðir hafa verið í tengslum við kvikusöfnunina er nægur þrýstingur búinn að byggjast upp í kerfinu til að koma af stað nýjum atburði á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
GPS mælingar sýna að síðustu daga hefur hægt örlítið á landrisinu. Þegar sú þróun í landrisi fer saman við jarðskjálftavirkni líkt og mældist á Sundhnúksgígaröðinni í gær, eru það vísbendingar um að það styttist í næsta kvikuhlaup og jafnvel eldgos. Því eru auknar líkur á að það dragi til tíðinda á næstu 7 – 10 dögum.
Hættumat óbreytt
Veðurstofan uppfærði hættumat í ljósi nýjustu gagna. Hættumatið er óbreytt frá því í síðustu viku og gildir til 6. ágúst, að öllu óbreyttu.
Sviðsmyndir sem Veðurstofan gaf út 23. júlí eru óbreyttar
Þetta eru sviðsmyndir sem taldar eru líklegastar ef til eldgoss kemur. Báðar sviðsmyndir eru taldar álíka líklegar og miðast við að kraftur eldgossins í upphafi verði álíka og í eldgosinu í maí.
Sviðsmynd 1 - Eldgos með upptök milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks (Miðhluti svæðis 3 á hættumatskorti). Svipuð staðsetning og eldgos sem hófust 18. desember 2023, 8. febrúar, 16. mars og 29. maí 2024.
- Líklegur aðdragandi er staðbundin smáskjálftahrina milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu.
- Mjög stuttur fyrirvari (innan við 30 mínútur).
- Hraun gæti náð að Grindavíkurvegi við Þorbjörn á innan við 1,5 klukkustundum og á innan við 3 klukkustundum að Grindavíkurvegi við Svartsengi utan varnargarða.
Sviðsmynd 2 - Eldgos með upptök sunnan við Sundhnúk, við Hagafell eða suður af Hagafelli (Syðsti hluti svæðis 3 á hættumatskorti og efsti hluti svæðis 4). Svipuð staðsetning og eldgos sem hófst 14. janúar 2024.
- Líklegur aðdragandi er smáskjálftahrina sem byrjar nærri Stóra-Skógfelli eða Sýlingarfelli og færist suður, hröðun í aflögun og þrýstingsbreytingar í borholum á svæðinu.
- Líklega yrði fyrirvari eldgoss á þessu svæði lengri en í sviðsmynd 1, en óvíst hversu mikið. Lengri fyrirvari ræðst af því hversu langt til suðurs kvikan brýtur sér leið áður en hún leitar upp á yfirborðið.
- Hraun gæti náð að Nesvegi og Suðurstrandavegi á innan við 1,5 klukkustund. Hraunflæði gæti mögulega lokað flóttaleiðum á landi út úr Grindavík á um 6 klukkustundum.
- Í þessari sviðsmynd gæti hraun náð til sjávar austan Grindavíkur á 1,5 til 3 klukkustundum. Ef hraun næði til sjávar gæti það valdið staðbundinni hættu vegna snöggrar kælingar á hrauni. Í fyrstu væri hætta vegna gjósku og gasmyndunar, fyrst og fremst saltsýru (HCI). Í um 500 m radíus frá þeim stað þar sem hraun kæmist í snertingu við sjó, væru aðstæður lífshættulegar.
- Kvikugangur sem nær suður fyrir Hagafell mun líklega valda verulegum sprunguhreyfingum í Grindavík.
- Í þessari sviðsmynd þarf að gera ráð fyrir þeim möguleika að hraun geti komið upp innan Grindavíkur. Einn möguleikinn er sá að hraun sem kemur upp úr gosopi norðan varnargarða við Grindavík geti flætt ofan sprungur og komið svo aftur upp um opnar sprungur innan bæjarmarkanna.
- Ekki er hægt að útiloka möguleika að gossprunga opnist innan Grindavíkur en í því tilfelli er talið líklegast að gossprunga myndi fyrst opnast norðan við bæinn áður en sprunga opnist innan bæjarmarkanna. Líkur á gosopnun innan Grindavíkur eru metnar „töluverðar“ í núverandi hættumati.