Bygg
Bygg

Fréttir

Næg verkefni hjá iðnaðarmönnum á Suðurnesjum
Mánudagur 29. nóvember 2004 kl. 16:41

Næg verkefni hjá iðnaðarmönnum á Suðurnesjum

Miklar framkvæmdir standa yfir í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Iðnaðarmenn hafa nóg að gera og sjá fram á næg verkefni næstu misseri. Í hverju sveitarfélagi á Suðurnesjum er verið að byggja fjölmargar íbúðir og á næstu tveimur árum munu þær skipta hundruðum.
Þegar litið er til byggingaframkvæmda tengdum atvinnuuppbyggingu er einnig mikið að gerast. Framkvæmdir eru hafnar við orkuver Hitaveitu Suðurnesja á Reykjanesi en heildarkostnaður þeirra framkvæmda verður um 10 milljarðar króna. Í Helguvík eru á dagskránni framkvæmdir fyrir hundruð milljóna króna og uppbygging íþróttaakademíu kostar tæpan hálfan milljarð króna. Í Sandgerði er verið að byggja Ráðhús í miðbænum, í Vogum á Vatnsleysuströnd er verið að byggja við grunnskólann og í Garðinum er verið að reisa byggðasafn við Garðskagavita.
Víkurfréttir leituðu til iðnaðarmanna á Suðurnesjum og voru þeir spurðir um verkefnastöðuna og hvernig þeir líti á framtíðina.

Benedikt Jónsson, Pípulagnir Benna Jóns ehf.
„Ég er með 28 manns í vinnu og mig vantar fleira fólk - ég sé varla fram úr verkefnum," segir Benedikt Jónsson hjá pípulögnum Benna Jóns. Fyrirtækið er með nokkur verkefni í Reykjavík. „Við erum með tvær blokkir í bænum og verkefni í Skuggahverfinu. Það er einnig nóg að gera hér á Suðurnesjum. Við erum með Ráðúsið í Sandgerði, fjölbýlishúsið við Pósthússtræti og erum að vinna að verkefnum við orkuverið á Reykjanesi. Við erum einnig með stórt verkefni fyrir Varnarliðið og verðum með Akurskóla," segir Benedikt og hann segir aukningu í verkefnum fyrir iðnaðarmenn hafi aukist gífurlega upp á síðkastið. „Maður er bara mjög bjartsýnn og við sjáum fram á verkefni langt fram í tímann - sérstaklega þegar maður lítur á Tjarnarhverfið í Innri-Njarðvík."

Anton Jónsson, Húsagerðin
Anton segir tíðina hafa verið þokkalega. „Við kvörtum allavega ekki. Við erum með stórverk í Sandgerði og erum að skila 8 íbúðum að Heiðarenda og erum að gera aðrar 8 íbúðir fokheldar. Við bíðum einnig eftir leyfi fyrir tveimur 18 íbúða húsum við Keflavíkurhöfn," segir Anton og hann er bjartsýnn á framtíð Suðurnesja. „Ef vel er á spöðunum haldið þá er framtíðin björt."

Halldór Ragnarsson, Húsanes
„Síðastliðin 3 til 4 ár hefur verið mikið að gera hjá okkur og verkefnastaðan hjá okkur núna er góð. Það er allt á fullu í Tjarnarhverfinu í Innri-Njarðvík. Þar erum við með 120 lóðir og byrjaðir að byggja á 24. Í vor hefjum við framkvæmdir á 40 lóðum í viðbót," segir Halldór og framundan eru einnig framkvæmdir á Hafnargötu 23. „Við keyptum húsið og þar ætlum við að byggja ofan á húsið. Á annarri hæð verður verslunarrými og íbúðir þar ofan á. Við reiknum með að hefja framkvæmdir í janúar eða febrúar."

Einar Guðberg, Meisarahús
„Verkefnastaðan er góð næstu árin. Við erum að byggja 7 hæða blokk að Pósthússtræti þar sem verða 26 íbúðir en hún verður tilbúin á næsta ári. Við erum einnig að undirbúa b yggingu á jafnstórri og alveg eins blokk við hliðina á þeirri sem nú er í byggingu, en það eru samliggjandi bílageymslur sem skilja þær að," segir Einar en það eru fleiri verkefni sem fyrirtækið vinnur að. „Á næsta ári afhendum við 50 íbúðir í Tjarnarhverfinu í Innri-Njarðvík. Þar af eru það 16 íbúðir fyrir Búmenn en sá áfangi er sá fyrsti af þremur. Einnig erum við að byggja 5 raðhús í hverfinu og klárum tvö 4 íbúða raðhús á næsta ári," segir Einar og hann er bjartsýnn. „Uppbyggingin er mikil á svæðinu og ástæða til bjartsýni."

Stefán Einarsson, Stefán og Ari ehf.
„Það er búið að vera mjög gott hjá okkur og ýmislegt í pípunum. Svo vorum við að fá stórt verkefni hjá varnarliðinu en það er uppbygging á nýjum messa. Það er stórt verk sem við hefjumst handa við næsta vor. Þeir mega eiga það Bandaríkjamenn að þeir gefa manni hálft ár til að undirbúa svo allt geti gengið snurðulaust fyrir sig á framkvæmdatímanum", sagði Stefán Einarsson hjá Stefáni og Ara.

Reynir Ólafsson, Nesraf
Reynir sagði að það væri mikið að gera hjá þeim í rafverktökunni og útlitið mjög gott. „Það er mikið af verkefnum á næstunni og mér heyrist vera mjög gott hljóð í iðnaðarmönnum", sagði Reynir og bætti því við að svo virtist sem samdráttur á Keflavíkurflugvelli hafi ekki komið mikið niður á störfum iðnaðarmanna enda hafi breyting á vinnu á Keflavíkurflugvelli verið að breytast á nokkrum undanförnum árum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn