Ná að lækka taprekstur í 200 milljónir kr.
Þrátt fyrir 600 milljón kr. lækkun á tekjum vegna minni atvinnutekna en áætlaðar voru fyrir árið 2010, stefnir í að bæjarsjóður Reykjanesbæjar skili 143 milljóna kr. hagnaði af rekstri fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði. Þeir liðir leiða hins vegar til tæplega 200 milljón kr. áætlaðs tapreksturs á bæjarsjóði á þessu ári. Þegar gert var ráð fyrir 600 milljón kr. skatttekjuaukningu af atvinnuverkefnum í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að hagnaður yrði 47 milljónir kr. Þetta kemur fram í endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins, sem lögð var fram í bæjarráði sl. fimmtudag.
„Þrátt fyrir jákvæða niðurstöðu af almennum rekstri, eru vandamálin ærin vegna lítilla skatttekna og fjármagnskostnaðar bæði hjá bæjarsjóði og Reykjaneshöfn,“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.
„Bæjarsjóður hefur þurft að bregðast við þessum vanda vegna stöðnunar í atvinnumálum, tregðu fjármálastofnana til fjármögnunar framkvæmda í Helguvík og tregðu við framlengingu lána. Þetta hefði gengið eftir í eðlilegu árferði.
Árni segir að bænum sé nánast gert að sýna rekstraráætlun fyrir næsta ár sem sé án aukinna tekna af atvinnustarfsemi, sem ríkið er þó sjálft að gera ráð fyrir, eins og álveri í Helguvík.
„Verkefni okkar verður þá að sýna hvernig okkur tekst að reka bæjarfélagið á þeim forsendum. Það þýðir talsverðan niðurskurð verkefna á næsta ári þótt við verjum skólastarf í grunnskólum og leikskólum og samfélagsþjónustuna. Við höfum gengið fastast að niðurskurði í stjórnsýslunni og starfsmenn bæjarins hafa margir tekið á sig launaskerðingar í stað hópuppsagna. Samt verður margt annað að gefa eftir sem við höfum stolt staðið að á undanförnum árum, s.s. styttri tími í umönnunargreiðslur, niðurfelling hvatagreiðslna, endurskoðun þjónustusamninga og skerðingar á styrkjum og framlögum. Við stefnum á að skila áætlun fyrir næsta ár sem sýnir áframahaldandi viðsnúning í rekstri.
Árni segir það vissulega góð merki að rekstur utan fjármagnsliða og afskrifta stefni í að vera jákvæður á þessu ári.
„Von mín er að atvinnuverkefnin taki að skila sér, þótt það verði ekki sýnt í fjárhagsáætlun bæjarins á næsta ári,“ segir Árni.