Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

N1 verður einn helsti styrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Mánudagur 21. maí 2007 kl. 01:53

N1 verður einn helsti styrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Slysavarnafélagið Landsbjörg mun njóta víðtæks stuðnings N1 í störfum sínum næstu árin. Samningur þessa efnis var undirritaður við upphaf landsþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið er í Reykjanesbæ um helgina.

Stuðningur N1 felst bæði í árlegu fjárframlagi til starfseminnar á landsvísu og í veglegum afsláttum af öllum þeim bílavarahlutum, aukahlutum, eldsneyti og bílaþjónustu sem deildirnar þurfa um land allt.

Sigurgeir Guðmundsson, formaður SL, segir samninginn sérstaklega hagstæðan, því í honum sameinist fjárhagsstuðningur og lækkað verð á bílavörum og eldsneyti sem eru veigamikill útgjaldaliður fyrir björgunarsveitir um land allt. „Þetta samstarf hentar mjög vel fyrir okkur. Við erum til dæmis með rúmlega hundrað sveitir og N1 er með rúmlega hundrað útsölustaði, þannig að báðir aðilar teygja sig hringinn i kringum landið“.

Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Starf samtakanna byggist á sjálfboðaliðum og er allt rekstrarfé fengið með fjáröflunum eða með styrkjum. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru um 100 talsins, staðsettar víðs vegar um landið með það að markmiði að vera til taks hvar og hvenær sem þess er þörf. Í félaginu eru um 18.000 félagar en á sjöunda þúsund eru á útkallsskrá og þar af eru rúmlega 3.000 virkir í starfi sveitanna.

N1 er eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins. N1 er með um 100 eldsneytisafgreiðslustöðvar um land allt, um 20 verslanir auk veitingasölu og fjölda hjólbarða- og smurverkstæða.


Mynd:Hermann Guðmundsson, forstjóri N1,  Sigurgeir Guðmundsson, formaður stjórnar Slysavarnafélagsins Landsbjargar SL, Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri SL og Jón Gunnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri SL  undirrituðu í dag samning um að N1 verði einn helsti styrktaraðili félagsins til ársins 2010.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024