Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Myndir: Kafara í vanda bjargað í Garðsjó
Þriðjudagur 10. febrúar 2009 kl. 20:15

Myndir: Kafara í vanda bjargað í Garðsjó

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út klukkan 18:30 í kvöld vegna kafara sem lenti í vandræðum rétt fyrir utan höfnina í Garði á Suðurnesjum. Kafarinn var að koma að landi þegar mikill straumur greip hann og bar frá landi. Maður sem var á bryggjunni í Garði að fylgjast með köfuninni kallaði eftir aðstoð.

Björgunarsveitin Ægir frá Garði, Sigurvon frá Sandgerði og Björgunarsveitin Suðurnes voru kallaðar út og fóru bátar af stað frá öllum sveitunum ásamt köfurum frá Grindavík.

Slöngubátur björgunarsveitarinnar Ægis var fyrstur á staðinn og með í för voru slökkviliðsmenn frá BS. Maðurinn náðist úr sjónum og reyndist í ágætu ásigkomulagi. Hann var fluttur að landi þar sem honum var komið í sjúkrabíl sem fór með hann til skoðunar á Heilbrigðistofnun Suðurnesja.

Björgunarmenn komnir í land með kafarann.

Sjúkraflutningamenn fylgdu kafaranum að sjúkrabíl...

... þar sem kafarinn var færður úr búningi sínum áður en hann fékk fyrstu skoðun.

Hann var síðan fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til frekari skoðunar.

Víkurfréttamynir: Hilmar Bragi Bárðarson