Myndin: Átta í óveðursröð
Það var skrautlegt ástandið á Keflavíkurflugvelli í óveðrinu í gærdag. Erfiðlega gekk að koma flugvélum upp að flugstöðinni vegna veðursins. Biðu flugvélarnar í röðum á akbrautum flugvallarins eftir afgreiðslu.
Meðfylgjandi mynd tók Magnús Ingi Guðmundsson og sýnir hún átta flugvélar Icelandair bíða eftir að komast upp að flugstöðinni.
Ljósmynd: Magnús Ingi Guðmundsson