Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Myndband og ljósmyndasafn á vf.is frá björgun út af Vogastapa
Laugardagur 16. maí 2009 kl. 14:53

Myndband og ljósmyndasafn á vf.is frá björgun út af Vogastapa


Víkurfréttir hafa sett inn myndband og ljósmyndasafn frá björgunaraðgerðum út af Vogastapa nú um hádegisbil. Mynbandið er í Sjónvarpi Víkurfrétta hér á forsíðu vf.is og ljósmyndir í myndasafni.

Björgunarskip og bátar Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Sandgerði, Reykjanesbæ og Vogum voru kallaðir út rétt fyrir klukkan 11 í morgun þegar tilkynnt var um tvo menn í sjónum um 500 m frá landi við Vogastapa. Mennirnir höfðu verið á sjó á 4 metra plastbáti og fengu yfir sig fyllu og sökk bátur þeirra í kjölfarið. Mennirnir voru í þurrbúningum  og gátu haft samband við Neyðarlínu í gegnum farsíma.
 
Björgunarbáturinn Njörður  frá Björgunarsveitinni Suðurnes kom fyrstur að mönnunum um 15 mínútum eftir að útkall barst og náði mönnunum úr sjónum, heilum á húfi.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð ú tog kom hún á staðinn á sama augnabliki og björgunarsveitarmenn náðu mönnunum úr sjónum. Þá voru lögreglumenn á Sómabáti á staðnum.

Farið var með mennina að Skipasmíðastöð Njarðvíkur, þar sem sjúkrabíll beið þeirra og fór með þá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til athugunar. Að sögn björgunarsveitarmanna voru þeir sem lentu í sjónum mjög vel búnir og áttu hrós skilið fyrir það.

Lögreglan hófst handa við að draga sokkinn bátinn, sem marraði í kafi, í land. Síðar kom þjónustubátur kafara á staðinn og kom bátnum að bryggju í Keflavíkurhöfn.



Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson



Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024