Myndatökuveður á morgun?
Þeir sem hugsa sér að fara út með myndavélina til að mynda snjóþyngslin eiga von á góðu myndatökuveðri á morgun. Þá verða norðan 3-10 metrar og skýjað með köflum en talsvert frost. Það er því spurning hvort tré, eins og þetta á meðfylgjandi mynd frá Ásbrú í dag, eigi ekki eftir að skarta sínu fegursta í sólarglætu morgundagsins.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Gengur í austan 8-15 m/s við suðvesturströndina. Annars hægari vindur. Dálítil él við suður- og austurströndina, en þurrt og bjart að mestu í öðrum landshlutum. Frostlaust við suðurströndina, en annars talsvert frost.
Á sunnudag og mánudag:
Austlæg átt 8-15 m/s, hvassast við suðausturströndina. Snjókoma eða él um landið austanvert, en léttskýjað vestantil. Hiti kringum frostmark við sjávarsíðuna, en frost 5 til 10 stig til landsins.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með snjókomu eða éljum fyrir norðan og austan, en lengst af þurrt um landið suðvestanvert. Frost um mest allt land.