Bygg
Bygg

Fréttir

Myndasafn frá Fegurðarsamkeppni Suðurnesja
Mánudagur 18. apríl 2005 kl. 10:05

Myndasafn frá Fegurðarsamkeppni Suðurnesja

Fegurstu stúlkur Suðurnesja voru saman komnar í Stapa á laugardagskvöld þar sem Petrúnella Skúladóttir var krýnd Fegurðardrottning Suðurnesja 2005.

Í öðru sæti varð Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir og Harpa Gunnarsdóttir í því þriðja.

Auk þess hlaut Petrúnella titilinn K-sport stúlkan, Linda María Hauksdóttir er Ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja, og Björg Áskellsdóttir er Bláa Lóns stúlkan.

Stúlkurnar hljóta að launum mikið af glæsilegum gjöfum, m.a. fær sigurvegarinn 100.000 kr. frá Sparisjóðnum í Keflavík, skartgripi, snyrtivörur og föt úr Persónu, Kóda og Mangó svo fátt eitt sé nefnt.

Ljósmyndari Víkurfrétta var að sjálfsögðu á staðnum og er veglegt myndasafn frá kvöldinu komið inn á vf.is.

Myndasafn

VF-myndir/Atli Már

Bílakjarninn
Bílakjarninn