Bygg
Bygg

Fréttir

Myndarlegur styrkur til barna- og unglingastarfs Félags heyrnarlausra
Þriðjudagur 15. nóvember 2011 kl. 13:25

Myndarlegur styrkur til barna- og unglingastarfs Félags heyrnarlausra

Sigurður Ingvarsson og eiginkona hans, Kristín Guðmundsdóttir, komu færandi hendi til Félags heyrnarlausra sl. föstudag. Á 70 ára afmæli Sigurðar, sem hann hélt hátíðlega í heimabæ sínum Garðinum á dögunum, afþakkaði hann allar persónulegar gjafir en hafði söfnunarbauk til styrktar barna- og unglingastarfi Félags heyrnarlausra þess í stað.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Færði hann félaginu allan afrakstur söfnunarbauksins, alls 440 þúsund krónur auk annarra upphæða sem hafa verið lagðar inn á reikning félagsins.


„Um leið og við óskum Sigurði til hamingju með afmælið þakkar félagið þessa dýrmætu gjöf sem verður vel nýtt í að byggja upp barna og unglingastarf hjá Félagi heyrnarlausra,“ segir á heimasíðu Félags heyrnarlausra.


Á myndinni sést Daði Hreinsson framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra taka við gjöfinni frá Sigurði Ingvarssyni.