Myndarlegur stuðningur við geðfatlaða á Suðurnesjum

Samkomulagið við Ríkisvaldið er gert í samræmi við stefnu og framkvæmdaáætlun ráðuneytisins 2006 - 2010 um eflingu þjónustu við geðfatlaða sem ber nafnið Straumhvörf.
Samkomulag um Straumhvörf felur í sér að varið verður 28,8 milljónum króna á árunum 2008 - 2010 til þess að styðja eftirtalin verkefni:
Stuðningur við Björgina
Athvarfið Björgin er starfrækt í Reykjanesbæ. Stefnt er að því að flytja starfsemina í stærra og hentugra húsnæði. Nágrannasveitarfélög munu koma að rekstrinum ásamt Reykjanesbæ. Einnig koma Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi og Sjálfsbjörg að rekstrinum. Í starfsemi Bjargarinnar er lögð áhersla á að styrkja og virkja hvern einstakling miðað við getu hans og áhuga, einnig er sérstök áhersla lögð á starfsendurhæfingu. Styrkur til athvarfsins er tvenns konar, annars vegar styrkur til greiðslu á húsaleigu vegna starfseminnar og hins vegar styrkur til að tryggja ráðningu iðjuþjálfa í 100% stöðu.

Geðteymi sem Félagsþjónustusvið Reykjanesbæjar og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa sett á fót með aðild forstöðumanns Bjargarinnar. Teymið veitir geðheilbrigðisþjónustu í samfélaginu, á heimavelli fólks með það að markmiði að draga úr eða koma í veg fyrir innlagnir á sjúkrahús. Teymið er nú skipað fagfólki (lækni, hjúkrunarfræðingi og félagsráðgjafa) Stefnt er að því að efla teymið um 1,2 stöðugildi sérfræðings (iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, sálfræðings). Framlag félags- og tryggingamálaráðuneytisins er hlutdeild (1/3 stöðugildi) á móti Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (1/3 stöðugildi) og sveitarfélögum á Suðurnesjum (1/2 stöðugildi).
Nýjar íbúðir
Auk þess sem að framan greinir munu Straumhvörf í þessum mánuði fá afhentar sex nýjar íbúðir fyrir geðfatlaða við Seljudal í Reykjanesbæ. Framlag ráðuneytisins vegna þeirra kaupa eru 27 miljónir króna, auk þess mun Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi, með stuðningi Straumhvarfa, hefur umsjón með því að nauðsynleg þjónusta sé veitt í íbúðunum í samræmi við lög um málefni fatlaðra nr. 50/1992. Áætlaður kostnaður við þjónustu í íbúðunum á þessu ári er 35 milljónir króna.
Straumhvörf - verkefni félags- og tryggingamálaráðuneytisins er með samkomulagi þessu og kaupum á nýjum íbúðum að verja um 90 milljónum króna til að stuðla að því að geðfatlaðir fái notið sín sem fullgildir borgarar samfélagsins.
Samkomulag við SSS

Markmið með samningi þessum er að efla þjónustu við geðfatlaða á Suðurnesjum í samstarfi við ríki, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra (SMFR) og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) annars vegar með rekstri athvarfs og hins vegar með geðteymi.
Í samningi SSS og Bjargarinnar er eftirfarandi tekið fram:
Tilgangur athvarfsins er að vera vettvangur fyrir fólk á Suðurnesjum með geðfötlun eða geðröskun, sem er utan stofnunar, óvinnufært og/eða félagslega einangrað. Jafnframt að veita stuðning til aukinnar virkni í athöfnum daglegs lífs svo og að efla frumkvæði þeirra til þátttöku í samfélaginu.
Tilgangur geðteymis er að styðja fólk á Suðurnesjum með geðfötlun eða geðröskun til þátttöku og virkni í athöfnum daglegs lífs og draga úr stofnanna innlögnum.