Myndarlegur stuðningur Sandgerðisbæjar við Sigurvon
Björgunarsveitin Sigurvon og Sandgerðisbær undirrituðu í vikunni þjónustusamning vegna ýmissa fastra verkefna á vegum Sigurvonar fyrir bæjarfélagið ásamt rekstri sveitarinnar og unglingasveitarinnar Vonar. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á framlengingu og hljóðar upp á 3,5 milljónir á ári.
Þá afhenti Sigurður Valur bæjarstjóri björgunarsveitinni gjafabréf upp á 5 milljónir til kaupa á nýjum björgunarbát fyrir hönd Sandgerðisbæjar. Sparisjóðurinn hefur styrkt Sigurvon um eina milljón til bátakaupanna og í síðustu viku afhenti Alcan Sigurvon styrk upp á hálfa milljón. Einnig hafa nokkur fyrirtæki og einstaklingar orðið að liði.
Það er ekki hægt að segja annað en Sandgerðisbær standi þétt við bakið á sínu fólki. Sandgerðisbær hefur fest kaup á húnsæði Sigurvonar við Strandgötu 17 og veitt björgunarsveitinni lóð á hafnarsvæðinu (við hliðina á Ísverksmiðjunni) fyrir athafnasvæði sitt endurgjaldslaust, en þar mun ný Björgunarmiðstöð rísa og eru áætluð verklok í maí 2008. Stefnan er að halda upp á 80 ára afmæli Björgunarsveitarinnar Sigurvonar þann 28. júní 2008 með pomp og prakt í nýja húsnæðinu.
Húsasmiðjan afhenti Sigurvon vandaðar óveðurstöskur sem innihalda öll nauðsynleg verkfæri fyrir minni útköll. Guðlaugur Ottesen gjaldkeri björgunarsveitarinnar upplýsti að á stefnuskrá Sigurvonar væru svo kaup á óveðurskerru sem inniheldur verkfæri fyrir stór útköll.
Björgunarsveitin Sigurvon vill koma á framfæri kæru þakklæti til þeirra fjölmörgu sem sýnt hafa sveitinni stuðning á árinu.
Frá þessu er greint á vefnum 245.is og þaðan er myndin einnig.