Bygg
Bygg

Fréttir

Myndarlegur rifsberjarunni í Sandgerði
Mánudagur 6. september 2004 kl. 14:54

Myndarlegur rifsberjarunni í Sandgerði

„Þetta er bara orðin hluti af haustverkunum í minni fjölskyldu,“ sagði Lydía Ósk Ómarsdóttir sálfræðinemi þar sem hún týndi ber af myndarlegum rifsberjarunna í garðinum hjá ömmu sinni og afa í Sandgerði um helgina. Rifsberin notar Lydía í rifsberjahlaup. „Þegar búið er að verka berin er hlaupið alveg hrikalega gott,“ segir Lydía. Hún segir nauðsynlegt að sjóða stilkana með því þeir eru hleypirinn. En hvernig er uppskriftin að góðu rifsberjahlaupi?
„Berin eru soðin í vatni og það eru 3 dl af vatni notað á móti einu kílói af berjum. Berin eru soðin í vatninu í um 20 mínútur án þess að hræra. Vökvinn er síðan sigtaður í gegnum tusku. Þá er einu kílói af sykri blandað á móti einum lítra af vökvanum og þetta látið sjóða í um 5 mínútur án þess að hræra. Hlaupinu er þá hellt í krukkur og það látið kólna,“ sagði Lydía í samtali við Víkurfréttir.

Myndin: Lydía týnir rifsber af myndarlegum runna í Sandgerði. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn