Bygg
Bygg

Fréttir

Myllubakkaskóli sigraði spurningakeppni grunnskólanna
Sigurlið Myllubakkaskóla.
Þriðjudagur 12. febrúar 2013 kl. 09:24

Myllubakkaskóli sigraði spurningakeppni grunnskólanna

Spurningakeppni grunnskólanna í Reykjanesbæ Gettu enn betur, fór fram í gær, mánudaginn 11. febrúar.  Allir skólarnir á svæðinu sendu lið til þátttöku og stóðu þeir sig með prýði. Eftir harða og drengilega keppni var ljóst að Akurskóli og Myllubakkaskóli kepptu til úrslita. Lið Myllubakkaskóla stóð loks uppi sem sigurvegari.

Lið Myllubakkaskóla skipuðu þeir Dagur Funi Brynjarsson, Hjálmar Freyr Agnarsson og Tryggvi Ólafsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Lið Akurskóla skipuðu þau Alexander Hauksson, Una María Magnúsdóttir og Sóley Ösp Sverrisdóttir.