Mylllubakkaskóli: Tvö innbrot með viku millibili
Brotist var inn í skólastofu (kálf) á lóð Myllubakkaskóla aðfaranótt sunnudags og þaðan stolið myndvarpa af gerðinni Sony 3LCO. Það sama gerðist fyrir um viku þegar gluggi var brotinn upp á skólastofunni við hliðina þaðan sem stolið var myndvarpa sömu gerðar.
Talsverðar skemmdir voru unnar á gluggum við innbrotið og loftklæðningu þegar myndvarparnir voru rifnir niður af festingunum í lofti skólstofanna.
Lögreglan á Suðurnesjum biður alla þá, sem gætu gefið einhverjar upplýsingar um málin að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.