Myllarnir aftur í First LEGO League hönnunarkeppnina
-Sigruðu keppnina í fyrra
Myllarnir úr Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ munu aftur spreyta sig í FIRST LEGO League hönnunarkeppninni sem fram fer í Háskólabíói laugardaginn 11. nóvember nk. Vatn er viðfangsefni keppninnar í ár og munu þau einblína á sóun vatns og dýrmæti vatnsins sem auðlindar.
Myllarnir samanstanda af sjö nemendum úr 8. bekk í Myllubakkaskóla, þeim Aroni Gauta, Gyðu Dröfn, Helgu Rut, Júlíu Mist, Maksymilian, Maríu Rós og Sæþóri Elí. Markmiðið hönnunarkeppninnar er að vekja áhuga ungs fólks á vísindum og tækni en um leið efla sjálfstraust, leiðtogahæfni og lífsleikni. Umsjón með æfingum Myllanna hafa kennararnir Íris Dröfn Halldórsdóttir og Ingibjörg Jóna Kristinsdóttir.
Verkefnið hlaut Hvatningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2017 en þau voru veitt í byrjun sumars.
Keppnin er þríþætt, en hún skiptist í rannsókn, hönnun vélmennis og samvinnu og liðsheild. Myllarnir sigruðu keppnina í fyrra og fóru með verkefni sitt í keppni á erlendri grundu.
Hópurinn ákvað að einblína á þá sóun sem á sér stað við framleiðslu á bómullarfatnaði á sama tíma og margar þjóðir búa við vatnsskort. Rannsókn hópsins leiddi í ljós að 3.000 lítra af vatni þarf til að búa til einn bol. Þau vilja því beina sjónum fólks að því að þó Íslendingar búi ekki við vatnsskort er það veruleiki margra þjóða þar sem framleiðsla bómullarvara fer fram. Því þurfi fólk að spyrja sig hvort þörf sé á öllum þessu fatnaði, hvernig draga megi úr offramleiðslu og sóun vatns, s.s. með endurnýtingu og kaupum á lífrænum vörum sem ekki nýta vatn í þessu mæli.
Frá afhendingu Hvatningarverðlauna Reykjanesbæjar þann 1. júní síðastliðinn. F.v. Alexander Ragnarsson, formaður fræðsluráðs Reykjanesbæjar, og umsjónamenn verkefnisins frá Myllubakkaskóla, þau Sveinn Ólafur Magnússon, Ingibjörg Jóna Kristinsdóttir, Íris Dröfn Halldórsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir, skólastjóri Myllubakkaskóla.
Hægt er að sjá kynningarmyndband Myllanna hér fyrir neðan.