Bygg
Bygg

Fréttir

Músagildrur fyrir utan Leifsstöð
Miðvikudagur 2. júlí 2003 kl. 15:53

Músagildrur fyrir utan Leifsstöð

Settar hafa verið upp músagildrur fyrir utan Flugstöð Leifs Eiríkssonar og segir Einar Már Jóhannesson rekstrarstjóri Flugstöðvarinnar að gildrunum hafi verið komið fyrir með forvarnir í huga. „Hagamúsin býr í Miðnesheiðinni og til að forðast það að músin komist inn í stöðina höfum við sett upp gildrur fyrir utan flugstöðvarbygginguna, auk þess sem þjónustuaðilar á Keflavíkurflugvelli hafa sett slíkar gildrur upp. Við lítum á þetta sem forvarnir, en það hefur færst mjög í aukana að fyrirtæki og stofnanir setji upp slíkar gildrur upp.“ Einar sagði að það væri enginn músagangur í byggingunni. „Mýsnar sækja í stórar byggingar á haustin og með þessum gildrum erum við að forða því að þær komist inn í bygginguna,“ sagði Einar Már í samtali við Víkurfréttir.

VF-ljósmynd: Músagildran fyrir utan Leifsstöð.
Bílakjarninn
Bílakjarninn