Miðvikudagur 2. júní 2004 kl. 09:56
Mötuneyti varnarliðsins rýmt
Mötuneyti varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli var rýmt fyrir stundu vegna grunsamlegs pakka sem fannst í mötuneytinu. Verið er að rannsaka pakkann og hafa varúðarráðstafanir verið gerðar vegna rannsóknarinnar.