HSS
HSS

Fréttir

Moss hlýtur Michelin-stjörnu
Einstök upplifun að snæða á Moss á einu glæsilegasta hóteli landsins, The Retreat.
Þriðjudagur 4. júlí 2023 kl. 06:10

Moss hlýtur Michelin-stjörnu

Veitingastaðurinn Moss í Bláa lóninu hefur hlotið hina eftirsóttu Michelin-stjörnu. Þetta var kunngjört við hátíðlega athöfn í Turku í Finnlandi á dögunum. Þar með er Moss orðinn þriðji íslenski veitingastaðurinn sem hlýtur þessa æðstu nafnbót í veitingageiranum en Michelin-stjörnur eru einungis gefnar út til veitingastaða sem Michelin álítur þá allra bestu.

Moss hefur áður verið í flokki veitingastaða sem Michelin-handbókin mælti sérstaklega með en hefur nú færst skör ofar og fengið sína fyrstu stjörnu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ein Michelin-stjarna þýðir að staðurinn sé í háum gæðaflokki. Tvær stjörnur þýða að staðurinn sé í enn hærri gæðaflokki og þrjár stjörnur að veitingastaðurinn sé framúrskarandi.