Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mörg spennandi tækifæri á Suðurnesjum
Mánudagur 24. nóvember 2003 kl. 11:34

Mörg spennandi tækifæri á Suðurnesjum

Guðbjörg Jóhannsdóttir tók við starfi atvinnuráðgjafa hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir stuttu, en Guðbjörg hefur mikla reynslu og þekkingu af frumkvöðlum og áhrifum  þeirra í atvinnuuppbyggingu. Guðbjörg hefur lokið viðskiptafræðinámi við Háskóla Íslands og M.s. námi í alþjóðamarkaðsfræðum þar sem hún lagði sérstaka áherslu á hlutverk frumkvöðla og atvinnuuppbyggingu. Guðbjörg hefur mikla trú á Suðurnesjum í atvinnulegu tilliti og segir að margt spennandi sé að gerast í þeim málum á svæðinu.


Í hverju felst starf atvinnufulltrúa?
Starf atvinnuráðgjafa SSS  fellst í að styðja og efla atvinnulíf á starfssvæðinu til langs tíma.  Það eru ótal leiðir að því markmiði en nefna má m.a. með handleiðslu, miðlun upplýsinga og leit að nýjum tækifærum.  Samvinna og samþætting eru veigamiklir þættir í starfi atvinnuráðgjafa. 
 
Hvernig líst þér á atvinnumálin á Suðurnesjum?
Ég lít á atvinnulíf á Suðurnesjum sem áhugavert viðfangsefni í breytingafasa um þessar mundir.  Við lifum á tímum breytinga, það má segja að starfsmenn geti gengið að einu vísu - stöðugar breytingar innan sem utan fyrirtækja.  Alþjóðavæðing leiðir af sér nýjar leiðir í rekstri fyrirtækja, harðari samkeppni og breytt lífsmynstur.  Sú þróun sem fylgir alþjóðavæðingunni kemur fyrr en síðar einnig til Íslands og Suðurnesja.  Það er því áherslu atriði að greina stöðu í atvinnulífi á Suðurnesjum og í framhaldi af því móta ákveðna stefnu sem vinna á að í þeim tilgangi að skapa öflugt og fjölbreytt atvinnulíf.
 
Eru einhverjar sérstakar áherslur sem þú beinir helst sjónum þínum að?
Það er mikilvægt að þekkja umhverfi og aðstöðu á svæðinu í þeim tilgangi að nýta þær auðlindir eða þau tækifæri sem hér er að finna eða leita inn á svæðið.  Framtíðin verður að leiða í ljós hvernig atvinnuumhverfi hér byggist upp, þarfir fyrirtækja eru gríðalega misjafnar og ómögulegt að staðhæfa um eitt eða neitt.  Vert er þó að hafa í huga að aðgengi að starfsfólki á einstökum sviðum geta takmarkað möguleika fyrirtækja er varðar innkomu á svæðið sem og fjölmargir aðrir þættir. 
 
Hvaða framtíð telurðu að Suðurnesin eigi í atvinnulegu tilliti?
Segja má að Suðurnesin sem slík sé eitt stórt áhugavert verkefni í atvinnulegu tilliti, hver dagur hjá atvinnuráðgjafa er einstakur.  Það sem ég veit í dag er að ég kem til með að leita leiða til frekari ávinninga í atvinnumálum á þessu atvinnusvæði.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024