HSS
HSS

Fréttir

Fimmtudagur 8. nóvember 2001 kl. 09:54

Mörg innbrot að undanförnu

Að sögn Karls Hermannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Keflavík hefur mikið verið um innbrot og þjófnaði að undanförnu.
Stærstu málin eru innbrot í Njarðvíkurskóla aðfaranótt miðvikudagsins 31. október. Þar voru unnin skemmdarverk á hurðum skólans en hurðirnar hafa verið spenntar upp með öflugu kúbeini. Stafrænni myndavél var stolið úr skólanum, HP tölvubúnaði, prenturum, fartölvu, myndbandstæki og myndbandsupptökuvél.
Aðfaranótt 24. október s.l. var brotisti inn í fjögur fyrirtæki í Grindavík og stolið þaðan verkfærum og tölvubúnaði. Þann 5. október var tilkynnt um þjófnað á tveim myndvörpum og
fartölvu úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Bílakjarninn
Bílakjarninn