Moka upp 300 þúsund rúmmetrum í Helguvíkurhöfn
Dýpkunarframkvæmdir í Helguvíkurhöfn eru langt komnar en unnið hefur verið að þeim í allt sumar. Í tengslum við álversframkvæmdirnar í Helguvík varð að dýpka höfnina um 14 metra við kantinn þar sem súrálsskipin munu leggjast að í framtíðinni. Þá er jafnframt dýpkað um 12 metra við gámakantinn. Til nánari glöggvunar á umfangi verksins þá er heildarmagnið upp á 300 þúsund rúmmetra. Stór hluti þess efnis er nýttur til jarðvegsframkvæmda á álverslóðinni og í sjóvarnargarð við höfnina.
Lengja þarf sjóvarnargarðinn um 150 metra en honum er ætlað að verja nýjan 360 metra viðlegukant. Umfangsmiklar jarðvegsframkvæmdir vegna hans hafa staðið yfir að undanförnu. Í varnargarðinn verður auk þess nýtt grjót sem til féll við lóðaframkvæmdir á sínum tíma vegna stálpípuverksmiðju sem átti að rísa í Helguvík en ekkert varð úr. Þá verður núverandi viðlegukantur lengdur um 150 metra. Framkvæmdir þessar munu kosta um 1,5 milljarð króna samkvæmt áætlun. Að sögn Péturs Jóhanssonar, hafnarstjóra, er fjármögnun verksins langt komin. Áætlað er að framkvæmdum við dýpkun hafnarinnar ljúki upp úr næstu mánaðamótum.
Ljósmynd: Oddgeir Karlsson