Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Möguleikar á koltvísýringsvinnslu kannaðir í Svartsengi
Metanólverksmiðja Carbon Recycling International stendur á sömu slóðum og Ísaga hefur áhuga á að reisa koltvísýringverksmiðju sína. VF-mynd: Hilmar Bragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 27. júní 2019 kl. 13:13

Möguleikar á koltvísýringsvinnslu kannaðir í Svartsengi

Ísaga hefur sent skipulagsyfirvöldum í Grindavík fyrirspurn um land fyrir verksmiðjuframleiðslu á koltvísýring (CO2).

Ef af verður yrði nýja verksmiðjan staðsett við Orkubraut en þar stendur m.a. metanólverksmiðja Carbon Recycling International. Í erindinu til Grindavíkurbæjar er m.a. talað um mögulegt samstarf við HS Orku, sem rekur orkuver sitt í Svartsengi.

Skipulagsnefnd hefur falið sviðstjóra að afla frekari gagna en athuga þarf umfang verkefnisins ásamt stærð og hæð mannvirkja.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024